Herhúsið
Herhúsið

Herhúsið

     

Í Herhúsinu á Siglufirði er gestavinnustofa fyrir innlenda og erlenda myndlistarmenn, tónlistarmenn, rithöfunda eða aðra sem vinna að listsköpun. Herhúsið er nýuppgert jafnt að utan sem innan. Vinnustofan er 70 fermetra salur með um 4 metra lofthæð. Þar er góður iðnaðarvaskur, trönur, borðplötur og búkkar og þægilegur sófi sem einnig má nota sem aukarúm.

 

Baðherbergið sem er á neðri hæð er með sturtu. Í turninum er björt stúdíóíbúð með tveimur rúmum. Í eldhúsinu er ísskápur, kaffivél, brauðrist, örbylgjuofn og tvær rafmagnshellur. Í húsinu er sjónvarp og útvarp með geislaspilara. Möguleiki er á þráðlausu netsambandi með ótakmörkuðu niðurhali. Í salnum er hægt að halda sýningar, fyrirlestra og tónleika í lok dvalar en hljómburðurinn í salnum er einstaklega góður. Herhúsið er í hjarta bæjarins og stutt í alla þjónustu, verslanir, þvottahús og veitingahús.

 

 

 

 

 


Saga hússins


Herhúsið var byggt árið 1914 og um áratuga skeið, á tímum síldarævintýrsins mikla, voru haldnar þar samkomur fyrir sjómenn og heimafólk, Guði til dýrðar. Frá fyrstu árum starfseminnar er til þessi lýsing Laufeyjar Þóroddsdóttur: "Enginn sem ekki hefur verið á samkomu á Siglufirði getur gert sér fulla grein fyrir hvernig hún fer fram. Þar eru samankomnir Baptistar, Medodistar, Pinsevenner, Kínatrúboðsmenn, Innratrúboðsmenn, KFUM meðlimir o.s.frv., en á Siglufirði eru þeir allir hermenn í Hjálpræðishernum, það er að segja þeir hópast um oss og taka þátt í starfi voru sem væri það þeirra eigið starf. Það er alls ekki sjaldgæft að heyra á einni samkomu vitnisburði á sænsku, norsku, dönsku, færeysku og íslensku. Allt fer mjög frjálslega fram, þeir sem hafa löngun til að vitna þeir gera svo".
Heimildir herma að sr. Bjarni Þorsteinsson, sóknarprestur, tónskáld og þjóðlagasafnari hafi látið flytja harmoníum kirkjunnar í Herhúsið og tekið þátt í samkomum þar ásamt konu sinni, Sigríði Blöndal, en hún lék á gítar og söng kvenna fegurst. Frá árinu 1980 dró mjög úr starfsemi Hjálpræðishersins og vorið 1999 komst húsið í eigu Herhúsfélagsins. Saga þess er nátengd sögu síldarbæjarins Siglufjarðar og bernskuminningar margra Siglfirðinga tengjast starfsemi hússins, kristniboði, söng og handavinnu undir leiðsögn norskra herkvenna.

 

 



Herhúsfélagið


Herhúsfélagið var stofnað í maí 1999 af nokkrum áhugamönnum um myndlist. Markmið félagsins var að koma upp gestavinnustofu á Siglufirði fyrir innlenda og erlenda listamenn. Hjálpræðisherinn gaf félaginu samkomuhús sitt við Norðurgötu 7b sem þá hafði ekki verið í notkun í allmörg ár. Stefán Örn Stefánsson og Grétar Marinósson, arkítektar hjá Arkitektastofunni Skólavörðustíg 28 (nú Argos ehf.), önnuðust teikningar, hönnun og viðgerð hússins að utan. Brynja Baldursdóttir sá um hönnun hússins að innan. Ólafur Kárason, byggingameistari tók að sér endurbyggingu hússins og vann hann, Birgir Ingimarsson og Baldvin Kárason smiðir við það öll árin. Helgi Magnússon og Ólafur Bjarnason unnu við pípulagnirnar og Rafbær sá um rafmagnið, Mark Duffield og Þorgeir Bjarnason sáu um málningarvinnuna og Byggingafélagið Berg smíðaði glugga og hurðar í húsið. Allar tíma- og kostnaðaráætlanir stóðust algjörlega.
Herhúsfélagið hefur fengið fjölda styrkja sem gerðu uppbygginguna mögulega. 50% styrkjanna komu frá ríkinu, 10% frá listamönnum, 12% frá Siglufjarðarkaupstað, 16% frá fyrirtækjum og 12% frá einstaklingum og félagsmönnum.

Herhúsfélagið og Siglufjarðarkaupstaður gerðu árið 2000 með sér samstarfssamning til fjögurra ára sem kvað á um að félagið sæi um eftirlit og ráðgjöf með listaverkasafni bæjarins og myndlistasýningar í Ráðhúsinu. Samkvæmt samningnum fékk félagið 300 þúsund krónur árlega í þessi fjögur ár.

Fyrsta sýningin sem félagið stóð fyrir var sýning Gullpenslanna árið 2001.
Aaron Michell árið 2002, Stefán Boulter árið 2003 og Gunnella árið 2004

 



Stofnendur Herhúsfélagsins og fyrstu stjórnarmeðlimir voru, Arnþór Þórsson, Ásta Júlía Kristjánsdóttir, Brynja Baldursdóttir formaður, Guðný Robertsdóttir, Hálfdán Sveinsson og Örlygur Kristfinnson.

 



Í stjórn Herhúsfélagsins eru nú:
Ásta Júlía Kristjánsdóttir (umsjón heimasíðu og bókanir), astajulia@simnet.is, Hálfdán Sveinsson, halfdan@simnet.is, Guðný Robertsdóttir (móttökustjóri og ritari), gudnyro@sigloskoli.is og Kristján Jóhannsson, kristjan@sigloskoli.is .

• herhusid@simnet.is • Norðurgata 7b, 580 Siglufjörður
© 2007 Uppsetning og hönnun Hýsir.is