Herhúsið
Herhúsið
 04.04.2006
 Samningur við bæjaryfirvöld
Herhúsfélagið og Siglufjarðarkaupstaður hafa gert með sér samning um að Herhúsfélagið veiti ráðgjöf um listaverk í eigu bæjarins og sjái um sýningar á miðhæð Ráðhússins. Þar verði að jafnaði sýning með listaverkum úr safni bæjarins. Á móti kemur 100 þúsund króna framlag til félagsins.
Nánar »  
 30.03.2006
 Sýning og fyrirlestur Guðrúnar.
Guðrún Kristjánsdóttir kynnti verk sín fyrir bæjarbúum eftir að hafa dvalið í Herhúsinu í mars. Á meðan á dvöl hennar stóð tók hún upp vídeómyndir af náttúrunni sem hún vinnur síðan í tölvu og tengir við tónlist.
Nánar »  
 27.03.2006
 Aðalfundur Herhúsfélagsins
Aðalfundur Herhúsfélagsins var haldinn 26. mars 2006. Hefðbundin aðalfundarstörf fóru fram, formaður las upp skýrslu stjórnar og kynntur var ársreikningur félagsins. Brynja Baldursdóttir sagði af sér formennsku og úr stjórninni, en hún hafði gegnt formennsku frá stofnun félagsins . Kosin var ný stjórn og eru í henni Ásta Júlía Kristjánsdóttir, Guðný Robertsdóttir, Hálfdán Sveinsson, Kristján Jóhannsson og Örlygur Kristfinnson.



Sjá hér fyrir neðan ársskýrslu félagsins fyrir árið 2005.
Nánar »  
 15.03.2006
 Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir er gestur marsmánaðar.
Nánar »  
 29.01.2006
 ÓB kvartett
Þann 29. janúar hélt ÓB-kvartettinn tónleika í Herhúsinu fyrir eldri borgara. Tónleikarnir tókust mjög vel og voru allir sammála um að hljómburður væri afar góður í húsinu. Kór eldri borgara, Vorboðarnir tóku einnig lagið
Nánar »  
 30.11.2005
 Fyrsti gestur Herhússins.
Janne Laine frá Finnlandi var fyrsti listamaðurinn sem dvaldi í húsinu í júlí 2005. Hann er grafíklistamaður og hefur nokkrum sinnum áður komið til Íslands og kennt við Myndlistaskólann á Akureyri. Meðan hann dvaldi í Herhúsinu vann hann aðallega hugmyndavinnu, ljósmyndaði mikið. Í lok dvalarinnar kynnti hann verk sín í Herhúsinu.
Nánar »  

Síðasta síða 1  2  3  4  5  6  7  8  9  
• herhusid@simnet.is • Norðurgata 7b, 580 Siglufjörður
© 2007 Uppsetning og hönnun Hýsir.is