 |
|
|
 |
 |
17.02.2007 |
| Styrkur úr Minningarsjóði Margrétar Björgúlfsdóttur |
Herhúsið á Siglufirði hefur fengið úthlutað 100.000.- kr. styrk úr Minningarsjóði Margrétar Björgúlfsdóttur.
Hjónin Þóra Hallgrímsson og Björgólfur Guðmundsson stofnuðu sjóðinn í ársbyrjun 2005 til minningar um dóttur sína Margréti sem lést af slysförum árið 1989 aðeins 33 ára að aldri. Þau lögðu fram stofnfé að fjárhæð 500 milljónir króna.
Markmið sjóðsins er að stuðla að heilbrigðu líferni og bættu mannlífi, efla menntir, menningu og íþróttir. Markmiðum sínum hyggst sjóðurinn ná með því að styrkja einstaklinga, verkefni og félög til mennta, framtaks, athafna og keppni - ekki síst á alþjóðlegum vettvangi. Stjórn Herhúsfélagsins þakkar innilega stuðninginn. ÁJK
|
 |
| Nánar » |
|
 |
 |
17.12.2006 |
| Ljóðakvöld |
| Í desember stóð Herhúsið fyrir ljóðakvöldi þar sem Vilborg Dagbjartsdóttir las úr eigin verkum. Er stefnt að því að slíkur viðburður verði ár hvert á jólaföstu. |
 |
| Nánar » |
|
 |
|
|
 |
|
|
 |
 |
28.06.2006 |
| Gerla |
| Guðrún Erla Geirsdóttir (Gerla) dvaldi í húsinu í júní. |
 |
| Nánar » |
|
 |
|
|
 |
 |
10.05.2006 |
| Guðrún fær styrk frá Pollock Krasner-sjóðnum. |
Guðrún Kristjánsdóttir myndlistarkona hlaut nýverið styrk úr Pollock Krasner-sjóðnum, sem er alþjóðlegur listasjóður stofnaður af Lee Krasner, ekkju listmálarans Jacksons Pollock. Sjóðurinn er mikils virtur; valnefnd hans er skipuð viðurkenndu fagfólki innan hins alþjóðlega listgeira og eru miklar kröfur gerðar til styrkþega. Styrkurinn þykir mikil viðurkenning þeim sem hann hljóta.
Guðrún stundaði myndlistarnám í Reykjavík og í Frakklandi og hefur sýnt verk sín víða um heim á undanförnum tveimur áratugum, meðal annars í Herhúsinu í mars sl.. Á síðasta ári voru tvær einkasýningar á verkum hennar í New York, auk sýningar í Gallerí 100° í húsi Orkuveitunnar í Reykjavík. Fram undan hjá Guðrúnu eru ýmis verkefni og sýningar, bæði hér heima og erlendis. (Heimild:Morgunblaðið) |
 |
| Nánar » |
|
 |
 |
26.04.2006 |
| Alma Dís |
Alma Dís Kristinsdóttir dvaldi í húsinu í apríl. Alma Dís er deildarfulltrúi fræðsludeildar Listasafns Reykjavíkur og var að vinna að gerð fræðsluefnis fyrir safnið.
|
 |
| Nánar » |
|
 |
 |
06.04.2006 |
| Styrkur úr Menningarsjóði Sparisjóðsins |
| Herhúsfélagið hefur fengið úthlutað 50.000.- króna styrk frá Menningarsjóði Sparisjóðs Siglufjarðar. Stjórn Herhúsfélagsins þakkar Menningarsjóði Sparisjóðsins stuðninginn fyrr og síðar, en styrknum í ár verður varið í frágang á lóð. |
 |
| Nánar » |
|
|
 |