Pétur Ben hefur dvalið í Herhúsinu undanfarna daga, en hann hélt tónleika í Þjóðlagasetrinu laugardagskvöldið þann 28. júlí sl. Hann lék þar m.a. lög af plötunni Wine for my Weakness sem kom út í fyrra. Með honum voru konan hans, Anna Kristín Guðmundsdóttir og dóttir þeirra Ása Diljá. Anna Kristín söng með honum nokkur lög og lék á slagverk en auk þeirra spilaði Óttar Sæmundsen á bassa. ájk
Norsku listamennirnir Runi Langum og Hans Martin Öjen dvelja nú í Herhúsinu ásamt sonum sínum þeim Rasmus og Alex. Á heimasíðu Runi má sjá teikningar og hreifimyndir sem hún hefur gert. Hans Martin er skúlptúrlistamaður. ájk
Nefndarmenn í Húsafriðunarnefnd komu í heimsókn og skoðuðu Herhúsið. Herhúsfélagið hefur fengið styrki úr Húsafriðunarsjóði og því höfðu þeir áhuga á að sjá hvernig til hefði tekist. Sjóðurinn styrkir uppbyggingu gamalla húsa, en endurgerð húsanna þarf að uppfylla ákveðnar kröfur hvað varðar efnisval og verklag.
Herhúsfélagið hefur fengið úthlutað 75.000.- króna styrk frá Menningarsjóði Sparisjóðs Siglufjarðar. Stjórn Herhúsfélagsins þakkar Menningarsjóði Sparisjóðsins stuðninginn fyrr og síðar. ÁJK
Jón Steinar Ragnarsson kvikmyndagerðarmaður og myndlistarmaður dvelur nú við skriftir í Herhúsinu. Til helstu afreka hans má nefna að hann er höfundur og leikmyndahönnuður barnamyndarinnar Ikíngut, auk þess að hafa verið leikmyndahönnuður kvikmyndanna Fíaskó, Engla Alheimsins og Nóa Albínóa, sem hann hlaut Edduna fyrir. Jón Steinar er auk þess mjög ötull bloggari. ÁJK
Marteinn Þórsson sem nú velur í Herhúsinu nam kvikmyndaleikstjórn í Toronto i Kanada. Helsta verk hans til þessa er kvikmyndin One.0 og verður hún sýnd í Bíósalnum í kvöld, sunnudag, kl 21.00.
Að þessari mynd vann Marteinn sem handritshöfundur og leikstjóri ásamt félaga sínum Jeff Renfroe.