Herhúsið
Herhúsið
 06.01.2008
 Bilun veldur tjóni.
Bilun í inntakssíu á heitu vatni varð til þess að heitt vatn lak undir gólfborðin í Herhúsinu. Guðný Robertsdóttir tók eftir gufu á rúðum í húsinu á Þorláksmessu og fór að kanna málið og sá þá hvernig komið var. Lekinn var ekki mikill en líklega hefur þó lekið í nokkra daga eftir vatnsmagninu og gufunni að dæma. Gólfborðin eru nokkuð bólgin af rakaþenslu en ákveðið hefur varið að leifa gólfinu að jafna sig fram í mars og ákveða þá hvað gert verður. Ljóst er að það þarf að mála húsið að innan vegna þessa en hugsanlega er nóg að pússa upp gólfið. ájk
Nánar »  
 05.12.2007
 Styrkur úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA
Herhúsfélagið hefur hlotið 100.000.- kr. styrk til rekstrar hússins, úr Menningar-og viðurkenningasjóði KEA.  Við þökkum kærlega fyrir okkur. ájk
Nánar »  
 04.12.2007
 Flís og Bogomil Font.
Djasstríóið Flís og Sigtryggur Baldursson (Bogomil Font) fluttu tónleika sína úr Gránu yfir í Herhúsið laugardaginn 1. desember sl. ájk
Nánar »  
 04.12.2007
 Jólaandinn í Herhúsinu.

Jólatónleikar KK og Ellen föstudaginn 30. nóvember sl. voru í einu orði sagt frábærir. Dagskráin var blönduð, gömul lög og ný, sálmar og jólalög, kryddað með góðum húmor og sögum. Útkoman var allt sem maður óskar sér á þessum árstíma, friður, gleði, léttleiki og sannur jólaandi. KK sagðist við upphaf tónleikanna hafa það á tilfinningunni að þetta ætti eftir að verða alveg sérstakt kvöld og það varð svo sannarlega raunin. Tónleikana sóttu 66 manns en um morguninn höfðu u.þ.b. 100 börn komið á tónleika sem þýðir að um 12% bæjarbúa hafa heimsótt Herhúsið þennan dag. ájk





Sjá myndir hér fyrir neðan.

Nánar »  
 01.12.2007
 Sungið fyrir börnin og börnin sungu með.

Í gær bauð Herhúsfélagið börnunum í neðra skólahúsi á tónleika.  Tónleikarnir tókust mjög vel og að sögn KK og Ellen tóku krakkarnir vel undir í söngnum. Þau höfðu orð á því hvað krakkarnir voru góðir og skemmtilegir og nutu þess í botn að syngja fyrir þau.  Þökkum ykkur krakkar og kennurunum kærlega fyrir komina og fyrir góða stund í Herhúsinu. ájk

Nánar »  
 29.11.2007
 Miðasala

Miðasala á jólatónleika KK og Ellen hefur gengið mjög vel og eru nú örfá sæti eftir. Miðarnir verða áfram seldir í apótekinu á morgun en ósóttar pantanir  verða seldar við innganginn. Herhúsið tekur 60-70 manns í sæti. ájk








Nánar »  
 18.11.2007
 KK og Ellen

Kristján Kristjánsson eða KK og Ellen Kristjánsdóttir verða með jólatónleika í Herhúsinu föstudaginn 30. nóvember nk. klukkan 20:30.  Fyrr um daginn halda þau tvenna tónleika fyrir nemendur Grunnskólans, í boði Herhúsfélagsins. Forsala aðgöngumiða hefst í apótekinu á mánudag.  Þetta verða tónleikar sem munað verður eftir. ájk

Nánar »  
 21.10.2007
 Ljóðahátíðin Glóð í Herhúsinu

Í gær lauk ljóðahátíðinni Glóð með dagskrá sem endaði í Herhúsinu þar sem lokaatriði hátíðarinnar fór fram.  Þar fluttu þeir Páll Helgason, Sigurður Skúlason og Elfar Logi Hannesson ljóð eftir Jónas Hallgrímsson í tilefni af því að þann 16. nóv.n.k. verða liðin 200 ár eru frá fæðingu skáldsins. Páll flutti erindi um lífshlaup Jónasar sem var mjög áhugavert og flutningurinn góður.  Það sama má segja um Sigurð og Elfar Loga, frábærar raddir og það var skemmtilegt að heyra hvað þeir fluttu ljóðin á ólíkan hátt, hver með sínu nefi, og náðu allir að hrífa okkur hin með sér. Tvö tónlistaratriði voru flutt inn á milli. Þar var annars vegar um að ræða frumflutning á lagi eftir Þórarinn Hannesson við texta Jónasar Réttarvatn og fluttu þau Mundína Bjarnadóttir og Kristján Jóhannsson lagið með höfundi.  Hins vegar flutti kvæðamannafélagið Fjallahnjúkar nokkrar veðurvísur eftir Jónas við vel þekkt kvæðalög.  Ljóðahátíðin Glóð er frábært framtak Þórarins Hannessonar og Glóa sem vonandi verður framhald á. ájk

Nánar »  
 19.10.2007
 Ljóð og gler
Myndhöggvarinn Dröfn Guðmundsdóttir opnar í dag glerlistasýningu í Herhúsinu en sýningin er einn dagskrárliða ljóðahátíðarinnar Glóð sem nú stendur yfir.  Í kvöld verður svo haldið ljóðakvöld í húsinu þar sem ljóðskáldin Þórarinn Torfason og Sigurður Skúlason lesa úr eigin verkum. ájk
Nánar »  
 17.08.2007
 Riceboy sleeps
Seinni hluta ágústmánaðar dvelja í Herhúsinu fjórir listamenn sem kalla sig Riceboy sleeps. ájk
Nánar »  

• herhusid@simnet.is • Norðurgata 7b, 580 Siglufjörður
© 2007 Uppsetning og hönnun Hýsir.is