Herhúsið
Herhúsið
 14.04.2008
 Aðalfundur Herhúsfélagsins
Aðalfundur Herhúsfélagsins verður haldinn í Herhúsinu miðvikudaginn 16. apríl kl. 18.
Nánar »  
 29.03.2008
 Auður í Herhúsinu
Heimboð í Herhúsið í dag, laugardag kl.15-17. Gestur marsmánaðar,
Auður Aðalsteinsdóttir, listmálari sýnir málverk sem hún hefur unnið í Herhúsinu á síðustu vikum.
Allir hjartanlega velkomnir.
Nánar »  
 08.03.2008
 Frétt í fréttablaðinu 13.desember sl.
Hér er hægt að sjá heilsíðufrétt sem birtist í Fréttablaðinu 13. desember s.l. í aukablaði um norðurland. 
Nánar »  
 29.02.2008
 Fjölmennt hjá Rigmor
Fjöldi manns lagði leið sína í Herhúsið síðasta miðvikudag í heimsókn til Rigmor. Hún kynnti sig og sagði frá upplifunn sinni hér og vinnu. Þegar hún kom hingað sást ekki á milli húsa.  Hún kom í stormi  og varð fyrir miklum  áhrifum af umhverfinu,bæði í storminum og þegar fór að rofa til.  Þetta þyrlaði upp "brainstormi"  þar sem hún vann úr snjókófinu, litum, birtu og formi húsanna og fjallanna sem umluktu hana.  Hún vann eins og stormsveipur, ótrúleg afköst.



Sjá myndir hér fyrir neðan.
Nánar »  
 26.02.2008
 Heimboð til Rigmor

Á morgun, miðvikudag, býður Rigmor Bak Fredriksen öllum sem staddir eru á Siglufirði að kíkja  til sín í Herhúsið á milli kl.17 og 19.  Rigmor kemur frá Gjern í Danmörku. Hún hefur áður dvalið hér á landi, meðal annars við kennslu við Myndlistaskólann á Akureyri. Hún sýnir verk sem hún hefur unnið síðustu vikur, bæði olíumálverk og teikningar.  Myndefnið sækir hún víða að úr umhverfinu svo sem fjöllunum, húsunum, Sauðanesvita og Síldarminjasafninu.

Nánar »  
 17.02.2008
 Fjallabyggð styrkir Herhúsfélagið.
Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar Fjallabyggðar fyrir árið 2008 var samþykkt að veita Herhúsfélaginu styrk að upphæð 250.000.- kr .   Stjórn félagsins þakkar stuðninginn og þá viðurkenningu sem styrkurinn felur í sér.
Nánar »  
 02.02.2008
 Stækkun Herhússins
Herhúsfélagið hefur í fórum sínum teikningu af húsi sem Hjálpræðisherinn hugðist byggja í stað litla hússins sem við þekkjum öll. Það væri vel þegið ef einhverjir sem þekkja til, gæfu sig fram og segðu frá þessum áformum.
Nánar »  
 30.01.2008
 Myndir frá opnu húsi Paul Lajeunesse
Sjá myndir hér fyrir neðan.


Nánar »  
 26.01.2008
 Opið hús
Paul Lajeunesse opnar vinnustofu sína í dag, laugardag kl. 16 - 19, og sýnir gestum verkin sem hann hefur unnið að síðustu vikur. 
Nánar »  
 12.01.2008
 Paul Lajeunesse
Myndlistarmaðurinn Paul Lajeunesse vinnur þessa dagana af miklum krafti í Herhúsinu. Ég leit inn til hans á þrettándanum og var hann þá að vinna að óvenju stóru verki að hans sögn en hann hefur einkum málað landslagsmyndir. Paul er Fulbright-styrkþegi og kemur frá frá St.Louis, Missouri í Bandaríkjunum. Hann hefur dvalið hér á landi frá því í september og verður út maí mánuð. Á dvalartímanum hefur hann ferðast um landið og tekið myndir sem hann styðst við þegar hann málar. Hann hefur lengi langað að koma til landsins eftir að hafa séð myndir héðan sem vöktu áhuga hans. Landslagið og birtan hér eru svo ólík öllu öðru sem hann hefur séð, það er víða fallegt en hann langaði að koma hingað til að upplifa eitthvað alveg nýtt. Paul er heillaður af landinu og vill helst dvelja áfram á norðurlandi eða jafnvel á vestfjörðunum þegar dvöl hans í Herhúsinu lýkur. ájk
Nánar »  

• herhusid@simnet.is • Norðurgata 7b, 580 Siglufjörður
© 2007 Uppsetning og hönnun Hýsir.is