Herhúsið
Herhúsið
 17.11.2008
 Ásdís Sif og Ragnar.
Ásdís Sif Gunnarsdóttir og Ragnar Kjartansson hafa dvalið undanfarnar vikur í Herhúsinu en þau eru bæði að undirbúa sýningar. Ásdís mun sýna í Miami en Ragnar verður fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum á næsta ári.
Nánar »  
 04.10.2008
 Gunnella
Listamaðurinn Guðrún Elín Ólafsdóttir hefur dvalið í Herhúsinu undanfarinn mánuð og unnið þar að list sinni. Hún býður nú öllum sem staddir eru á Siglufirði að koma og skoða afraksturinn á milli kl 15 og18.
Nánar »  
 20.09.2008
 Halldór Ásgeirsson
Halldór Ásgeirsson myndlistamaður dvaldi í húsinu frá miðjum ágúst og fram í september. Hann var að vinna myndverk fyrir einkasýningu sem opnaði 12.september í Gallery Turpentine.
Nánar »  
 13.07.2008
 Jóhanna Boga
Jóhanna Bogadóttir er gestur okkar í Herhúsinu í júlí. Jóhanna er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum en nam myndlist í Svíþjóð og  í Frakklandi. Hún hefur ferðast víða og numið og unnið við list sína í Mexikó, á Indlandi, Spáni, Grikklandi, Bandaríkjunum, Úganda og víðar.  „Á vegum hafsins“ er heiti sýninga sem Jóhanna Bogadóttir opnaði fimmtudaginn 3. júlí. Önnur sýningin er  í Gallerí Gránu Síldarminjasafninu og hin í Ráðhússalnum. Allir íbúar Fjallabyggðar og gestir eru velkomnir. Þarna má sjá ...
Nánar »  
 06.07.2008
 Unnar Örn J.Auðarson
Unnar Örn J. Auðarson listamaður dvaldi í gestavinnustofunni í júni. Hann vinnur með ólíka miðla og mismunandi efni. Verk hans eru oft hlutar úr stærri innsetningum, og fela tíðum í sér gagnrýni á samfélagið, umhverfið og hlutverk listamannnsins. Verkið á myndinni kallast Hrörnunarsamstæðan / Glerhlaðan en verkið var hluti af sýningu í Hlöðunni í lok júní s.l.
Nánar »  
 07.06.2008
 Ástþór Árnason fær viðurkenningu.
Herhúsfélagið veitti í fyrsta sinn í ár viðurkenningu fyrir góðan árangur í myndmennt, til útskriftarnema við Grunnskóla Siglufjarðar. Viðurkenninguna fékk Ástþór Árnason, en hann hefur frá fyrstu tíð sýnt mikla hæfileika á myndlistasviðinu. Guðný Robertsdóttir stjórnarmeðlimur í Herhúsfélaginu afhenti honum bókina Litbrigði vatnsins, vatnslitamálverk eftir Hafstein Austmann. Guðný sagði frá því að hún kenndi útskriftarárgangnum í fyrsta bekk og þá þegar hafi Ástþór sýnt að þarna var efni í listamann. Hafsteinn...
Nánar »  
 13.05.2008
 María Loftsdóttir með sýnikennslu og sýningu.
María Loftsdóttir býður upp á ókeypis sýnikennslu í vatnslitamálun í Herhúsinu, miðvikudagskvöldið 14.maí kl. 20.  Litir, penslar og pappír fyrir alla sem vilja mála.

María verður einnig með opið hús á laugardaginn á milli kl 15 og 18 , þar sem hún sýnir verk sín.
Nánar »  
 06.05.2008
 Fimm dagar í maí.
Óttar Sæmundsen kontrabassaleikari og  Mónika.
Nánar »  
 24.04.2008
 Mikil ásókn í Herhúsið.
Umsóknum um gistingu í Herhúsinu er alltaf að fjölga og verðum við því miður að vísa mörgum frá.  Húsið er nú bókað út október og í mars og apríl á næsta ári. Listamennirnir sem hafa dvalið hjá okkur hingað til hafa allir verið yfir sig hrifnir af húsinu, kyrrðinni hér og bænum.  Hér fái þeir góðan vinnufrið og afkasti miklu. Nokkrir hafa haft orð á því að þeir vilji setjast hér að, og nú er útlit fyrir að a.m.k. tveir þeirra muni dvelja hér í bænum eitthvað á næstunni.  Í maí koma þau Óttar Sæmundsen kontrabassaleikari og María Loftsdóttir myndlistakona. Siglfirðingar þekkja Óttar vel en hann hefur unnið í Þjóðlagasetrinu á sumrin. Hann kemur í byrjun maí og ætlar að vinna við að semja kórverk.  María Loftsdóttir er að vinna í vatnslitamyndum og ætlar jafnvel að bjóða fría sýnikennslu eina kvöldstund, en það verður auglýst síðar.
Nánar »  
 23.04.2008
 Styrkur úr Menningarsjóði Sparisjóðs Siglufjarðar
Herhúsfélagið hefur fengið úthlutað 75.000.- króna styrk frá Menningarsjóði Sparisjóðs Siglufjarðar. Stjórn Herhúsfélagsins þakkar Menningarsjóði Sparisjóðsins stuðninginn fyrr og síðar. ÁJK
Nánar »  

• herhusid@simnet.is • Norðurgata 7b, 580 Siglufjörður
© 2007 Uppsetning og hönnun Hýsir.is