|
 |
 |
 |
|
|
 |
 |
02.06.2009 |
| Liane Sommer |
Þessa dagana dvelur Liane Sommer, myndlistakona frá Þýskalandi, í Herhúsinu. Hún vinnur með ýmsa tækni, málar á striga, blandar saman ljósmyndum, málverki og ætingu. Verk hennar eru aðallega abstakt verk og oft unnin í samvinnu við aðra listamenn. Þá þróa þau ákveðin þemu og túlka þau á listrænan hátt. Verkið sem hún vinnur að nú heitir: "Ó, en fínt....- hvers vegna er landslag fallegt?". Liane hefur mikinn áhuga á að komast í samband við íslenska listamenn til að kynnast viðhorfum þeirra til landslagsins. Þeir sem hafa áhuga geta haft samband með tölvupósti: sommer33019@t-online.de |
 |
| Nánar » |
|
 |
 |
29.03.2009 |
| Manuela og Per |
Dr. Manuela Eichenroth og Per Michaelsen dvöldu í Herhúsinuí mars/apríl
|
 |
| Nánar » |
|
 |
 |
23.02.2009 |
| Julia Wenz |
Síðastliðinn mánuð hefur Julia Wenz , listakona frá Stuttgart í Þýskalandi, verið starfandi í húsinu . Hún dvaldi í gestavinnustofu SÍM í Reykjavík síðastliðið sumar, en vildi koma aftur til landsins að vetri til, til að ljúka því sem hún hafði byrjað á. Christian Eickhoff tónskáld hefur verið hjá henni frá því um miðjan mánuðinn og unnið við tónsmíðar. Julia vinnur með ýmis efni, málar, saumar og sker út og er mjög óhefðbundin í verkum sínum.
Sjá nánar: |
 |
| Nánar » |
|
 |
 |
19.02.2009 |
| Umsóknum að Herhúsinu fjölgar stöðugt. |
Herhúsinu hafa borist 50 umsóknir um dvöl í húsinu í sumar. Umsækjendur eru frá 19 löndum; 15 frá Bandaríkjunum, 7 frá Bretlandi, 4 frá Íslandi, 3 frá Hollandi, Kanada og Þýskalandi, 2 frá Frakklandi og Serbíu og 1 frá Kóreu, Írlandi, Taílandi, Eistlandi, Póllandi, Svíþjóð, Danmörku, Tékklandi, Slóvakíu, Ísrael og Alsír. Nokkrar umsóknir hafa borist nú þegar fyrir næsta vetur og næsta ár. Húsið hefur verið fullbókað jafnt sumar sem vetur síðustu ár. Listamennirnir sem hafa dvalið hér hafa allir verið yfir sig hrifnir af vinnuaðstöðunni , Siglufirði og náttúrufegurðinni hér í kring. Nokkrir ætla að sækja aftur um dvöl á öðrum árstíma og sumir hafa jafnvel sýnt áhuga á að eignast hér hús.
|
 |
| Nánar » |
|
 |
 |
01.02.2009 |
| Michael Wollny |
Píanóleikarinn Michael Wollny varð því miður að aflýsa tónleikum sem fyrirhugaðir voru í lok janúar. Hann vinnur nú að útgáfu á geisladiski sem hann vonast til að geta tekið upp hér á landi í mars n.k.. Michael og Charlotte hrifust mjög af Siglufirði og Herhúsinu og vonast til að geta komið aftur fyrr en síðar.
|
 |
| Nánar » |
|
 |
 |
27.12.2008 |
| Charlotte McGowan-Griffin og Michael Wollny |
Charlotte McGowan-Griffin og Michael Wollny komu í Herhúsið á Þorláksmessu og verða út janúarmánuð. Charlotte er fædd í London en starfar í Berlín ásamt Michael sem er þjóðverji. Verkið á myndinni "Illuminated forrest" er nú til sýnis í Tadao Ando´s Aomori nýlistasafninu í Japan. Verkið er ljós-innsetning (light installation), en hún vinnur mikið með ljós og klippimyndir. Stefan Hentz tónlistargagnrýnandi Die Welt segir Michael vera "jazz-undur Þýskalands", aðrir tala um "framtíðar-hljóm djassins" og "djass áhrifin notuð á mjög skapandi hátt" í gagnrýni sinni. Hljómsveit hans (em) gaf út sinn þriðja disk á árinu en hann hlaut viðurkenninguna "plata ársins" af tímaritinu Jazzmagazine. Michael mun halda tónleika í janúar sem verða auglýstir síðar. Ekki missa af þeim.
|
 |
| Nánar » |
|
 |
 |
16.12.2008 |
| Listaganga Ferðafélagsins. |
Ferðafélag Siglufjarðar stóð fyrir göngu þann 11. desember s.l. þar sem gengið var á milli vinnustofa í bænum. Yfir 80 manns tóku þátt í göngunni í ljómandi góðu veðri og þáðu veitingar sem voru í boði á hverjum stað. Farið var í Gallerý Sigló, Iðjuna, Sjálfsbjargarhúsið, vinnustofu Fríðu, Kvennasmiðjuna, Herhúsið, vinnustofu Abbýar og endað hjá Bergþóri Mortens. Kevin og Bridget sýndu vídeómyndir sem þau tóku hér en voru ekki búin að klippa. Ljósmyndir Kevins fáum við vonandi að sjá síðar en hann tók eingöngu myndir hér á filmu.
|
 |
| Nánar » |
|
 |
 |
30.11.2008 |
| Kevin Cooley og Bridget Batch |
Ljósmyndararnir Kevin Cooley og Bridget Batch eru í óða önn að taka myndir hér í nágrenninu. Þau búa í New York en Kevin ferðast mikið vegna vinnu sinnar. Hann starfar að mestu sjálfstætt en tekur einnig að sér verk fyrir ýmis tímarit. Meðal viðskiptavina hans eru tímaritin Newsweek, New York Times Magasine, Life og fleiri.
|
 |
| Nánar » |
|
 |
 |
22.11.2008 |
| "Allt kalla þeir nú list" |
Listahjónin Ásdís Sif Gunnarsdóttir og Ragnar Kjartansson sýna hörkutöff vídeóverk sín á stóra tjaldinu í Allanum kl. 21 í kvöld. Allir velkomnir. Fyrstu 100 gestirnir fá frítt inn.
|
 |
| Nánar » |
|
|
 |
|
|
 |
|