 |
|
|
 |
|
|
 |
 |
25.09.2009 |
| Lin de Mol |
Lin de Mol er stödd hér ásamt aðstoðarkonu sinni Hönnu, en hún vinnur að gerð bókar með teikningum og ljósmyndum sem hún hefur tekið á Írlandi og nú hér á Íslandi. Lin býr í Amsterdam en hún hefur sýnt og tekið þátt í fjölda samsýninga um allan heim.Eins og sjá má á heimasíðu hennar hefur hún líka tekið stuttmyndir og gert innsetningar. |
 |
| Nánar » |
|
 |
 |
24.09.2009 |
| Julia Lohman og Gero Grundmann |
Gestir septembermánaðar í Herhúsinu eru listafólkið og hönnuðirnir Julia Lohman og Gero Grundmann - munu þau í dag segja frá vinnu sinni og dvölinni hér kl: 17 í Herhúsinu. Allir eru velkomnir. Hjónin Júlía og Geró eru þýsk en búa í London. Vinna þeirra spannar vítt svið vöruhönnunar, skúlptúrgerðar, auglýsingateiknunar, prentverks og myndskreytingar. Verkefni þeirra fjalla gjarna um samband mannkyns við náttúna og hvernig maðurinn hagnýtir sér náttúruleg og tilbúin efni. Verk þeirra eru sýnd víða um heim og starfa þau reglulega sem kennarapar í Konunglega listaháskólanum í London, Listaskólanum í Norwich og öðrum háskólum víða um Evrópu.
|
 |
| Nánar » |
|
 |
 |
28.08.2009 |
| Dan og Trish |
Listaparið Trish og Dan sýndu afrakstur leitarinnar að síldinni í Herhúsinu. Þar sýndu þau mynd- og hljóðverk og var fjölmennt á sýningunni.
|
 |
| Nánar » |
|
 |
 |
27.08.2009 |
| Á vit síldarinnar |
| Bresku hjónin Dan og Trish Scott sýna í Herhúsinu á morgun, föstudaginn 28.ágúst , kl.17. Þau hafa virkjað hæfileika margra bæjarbúa undanfarnar 4 vikur og verður mjög forvitnilegt að sjá útkomuna. |
 |
| Nánar » |
|
 |
 |
25.08.2009 |
| Winter Ships |
| Hér má sjá myndir af sýningu Charlotte McGowan-Griffin, Winter Ships í júlí sl. |
 |
| Nánar » |
|
 |
 |
07.08.2009 |
| Francois Raymond |
| Franska listakonan Francois Raymond var gestur okkar i Herhúsinu í júlí. Hún var með opið hús um verslunarmannahelgina og fékk mjög góða aðsókn. |
 |
| Nánar » |
|
 |
 |
30.06.2009 |
| Alexander Örn |
| Herhúsfélagið veitti í ár í annað sinn viðurkenningu fyrir góðan árangur í myndmennt til útskriftarnema við Grunnskóla Siglufjarðar. Viðurkenninguna fékk í þetta sinn Alexander Örn Kristjánsson, en hann þykir mjög efnilegur á myndlistasviðinu. Alexander fékk að gjöf, bókina Litbrigði vatnsins, vatnslitamálverk eftir Hafstein Austmann. Þess má geta að Alexander og Ástþór Árnason sem fékk viðurkenninguna í fyrra eru systrasynir. |
 |
| Nánar » |
|
 |
|
|
|
 |