Herhúsið
Herhúsið

Sabine Schirdewahn
 02.08.2010
 Sabine Schirdewahn
Gestir júlímánaðar voru Sabine Schirdewahn og Matthias Wagner frá Berlín.
Sabine Schirdewahn og Matthias Wagner voru í Herhúsinu í júlí. Þau hafa á undanförnum árum unnið að undirbúningi bókasýningarinnar í Frankfurt árið 2011 þar sem Ísland verður heiðursgestur ( http:/sagenhaftes-island.is ). Þau eru hugmyndafræðingar sýningarinnar ÍSLAND::KVIKMYNDIR sem er farandsýning Berlín-Kaupmannahöfn-Reykjavík. Þar er gerð grein fyrir þróun íslenskrar kvikmyndagerðar og helstu sérkennum hennar. Sýningin er nú í Þjóðmenningarhúsinu og stendur fram í september 2010. Haustið 2011 verður hún sett upp í íslenska skálanum á bókamessunni í Frankfurt. Sabine er menntuð sem skúlptúristi en hefur unnið í margs konar efni og með ýmsum miðlum, starfað við leikhús og ljósmyndir. Á Siglufirði hefur hún safnað ljósmyndum í sarpinn. Heimasíða hennar http:/sabine-schirdewahn.de/

1  2  3  4  5  6  7  8  9  10  11  12  13  14  15  16  17  18  19  20  21  22  23  24  25  26  27  28  29  30  31  32  33  34  35  36  37  38  39  40  41  42  43  44  45  46  47  48  49  50  51  52  53  54  55  56  57  58  59  60  61  62  63  64  65  66  67  68  69  70  71  72  73  74  75  76  77  78  79  80  81  82  83  84  85  86  Næsta síða 
• herhusid@simnet.is • Norðurgata 7b, 580 Siglufjörður
© 2007 Uppsetning og hönnun Hýsir.is